Velkomin(n)!

Orgel,  hljómborðs og tónfræðikennsla


Ég heiti Stefán H. Kristinsson og er organisti sem og sjálfstæður tónlistarkennari í Reykjavík.

Ég hef verið að kenna síðan árið 2004 þegar ég byrjaði sem organisti og tónlistarkennari á Fáskrúðsfirði.  Mest hef ég verið að leiðbeina byrjendum en ég kenni einnig lengra komnum.

Ég kenni aðallega í heimahúsum,  sérstaklega ef nemandinn hefur aðgang að hljóðfæri heima við.

Hver tími er 40 mínútur og er kennt einu sinni í viku.

Aldrei er of seint að byrja og hef ég verið með byrjanda á 86. aldursári og vegna áhuga að þá var hann einn besti nemandi minn!

Áhugasamir vinsamlegast hafið samband í síma: 869 8323 og eða sendið tölvupóst á stefan( hjá )tonskald.com.

Tónlist samin/útsett/spiluð af mér